Beint í leiðarkerfi vefsins eða leitarvél vefsins.
Tún vottað lífrænt lambakjöt er komið á markað undir vörumerkinu Himnesk Hollusta. Lambakjötið er frá Mælifellsá í Skagafirði og er meðhöndlað sérstaklega fyrir neytandann. Lambakjötið er fullmeyrnað sem tryggir mýkt og gæði kjötsins. Kjötið verður selt frosið og verður fáanlegt í Maður lifandi, Borgartúni og Hæðasmára, Fjarðarkaup, Melabúðinni og Þín Verslum, Seljabraut.
Þetta er nýjung í “Himnesk Hollusta” vörulínunni og stenst fyllilega þá gæðastaðla sem falla undir það vörumerki.
Lífrænt lambakjöt
Mjög fáir bændur stunda lífræna ræktun á lambakjöti og er ástæðurnar væntalega margvíslegar. Til að fá vottun á lífrænu lambakjöti þarf bóndinn að uppfylla mörg skilyrði.
Jörð og tún þurfa að vera friðuð frá áburði og öllum aukaefnum í a.m.k 2-3 ár áður en framleiðsla getur hafist.
Tún þurfa að vera næg þar sem minna gras fæst af hverjum hektara en með hefðbundinni áburðargjöf. Heyskapur á Mælifellsá er með gamla laginu, heyið er fullþurrkað og og hirt í lausu.
Einugis er notast við íslenskt fóður.
Féð á Mælifellsá gengur sjálfala inn og út úr fjárhúsunum sem gerir féð hraustara og mun glaðara.
Mælifellsá hefur verið lífræn jörð í 10 ár