Gratinerað grænmeti í kókossósu

11.19.2008

½ blómkálshaus
2 gulrætur
4 stórir sveppir
1 lítill púrrulaukur
1 rauð paprika
1 græn paprika
1 appelsínugul paprika
2 msk sólblómaolía
sjávarsalt

Sósa:

1 msk kókos eða sólblómaolía
1 köggull engifer, saxað
1 geiri hvítlaukur, saxaður
1 dós kókosmjólk
2 tsk paprika
2 tsk timian

Rifinn mozzarellaostur

Grænmetið skorið í bita og bakað í ofni með olíu og smá sjávarsalti, engifer og hvítlaukur léttsteikt í olíunni, kókosmjólk og kryddi blandað í, sósu blandað saman við grænmeti og sett í ofnfast mót, osti stráð yfir, bakað í ca 25 mín við 180°C.