Grænmetis lasagna

11.19.2008

Speltblöð

Rifinn mozzarella ostur
1 rauð paprika í sneiðum
1 græn paprika í sneiðum
4 stilkar seller í litlum bitum
2 gulrætur, rifnar
1 bolli puy baunir, soðnar


SÓSA:
1 msk kókosolía eða sólblómaolía
1 laukur, saxaður
1 hvítlauksgeiri, saxaður
2 krukkur tómatar
½ dl appelsínuþykkni
1 tsk basil
1 tsk oregano
Sjávarsalt og pipar

Laukur og hvítlaukur léttsteiktur í olíu, vökva bætt útí og kryddi, smakkað til með sjávarsalti og pipar, grænmeti, baunum og sósu blandað saman, setja í ofnfast mót, sósumat á botninn í miðju og efst, 2 lög af speltplötum og ostur ofaná, bakað í ca 25 mín við 180°C.