Brauð

11.19.2008

Þetta er basic uppskrift sem hægt er að leika sér að vinstri
hægri, pizza, píta, formbrauð, smella á grillið eða jafnvel
pönnusteikja með fullt af sjávarsalti, þá ertu komin með Naan brauð.

300 gr spelt
3 msk ólífuolía
1 msk vínsteinslyftiduft
1 tsk sjávarsalt
2 dl vatn

Hræra saman þurrefnum bæta blautefnum út í og blanda varlega
saman eins stutt og hægt er. Mér finnst best að hræra þetta í höndunum
því það hefur tilhneigingu að yfirvinnast í vél og þá verður það
þungt, seigt og illmeðfærilegt.
Það má líka setja ab mjólk í staðinn fyrir olíu og vatn. Ef
þú gerir brauðhleif er gott að auka vatnsmagnið, bæta í 2 msk af
vínsteinslyftidufti og setja allskonar fræ og eins er gott að setja þurrkaðar kryddjurtir ef maður gerir pizzabotn.