Beint í leiðarkerfi vefsins eða leitarvél vefsins.
150 g kartöflumjöl
150 g hrísgrjónamjöl
50 g bókhveiti
100 g maísmjöl
45 g sojamjöl
4 tsk vínsteinslyftiduft
¾ tsk himalayasalt eða sjávarsalt
1 tsk agavesýróp
1 msk kókos eða ólífuolía
125 ml kókosvatn
125 ml heitt vatn
2 msk sítrónusafi
Setjið þurrefnin í hrærivélaskál ásamt kókosolíunni og hrærið vel saman. Bætið restinni af uppskrifinni útí og látið hnoðast saman.
Setjið brauðið í smurt brauðform eða mótið hleif og setjið á bökunarpappír í eldhússkúffu. Bakið við 180C í 45-50 mín eða þar til fullbakað.
Stingið prjóni í brauðið og þegar ekkert deig festist við hann lengur þá er þetta tilbúið. Vefjið utan um brauðið viskustykki og leyfið að kólna algjörlega áður en þið skerið það. Frábært að skera í þunnar sneiðar og setja í brauðristina. Gott að nota ískúluskeið og setja í muffinsform - Baka í um 30 - 35 min við 180 C