Beint í leiðarkerfi vefsins eða leitarvél vefsins.
Við fáum andoxunarefni úr ávöxtum, grænmeti, korni, baunum, hnetum og jurtum.
Til andoxunarefna teljast til dæmis A-vítamín, beta-karotín og önnur karotín, flavanoids, C og E vítamín, selen og zink. Annað öflugt andoxunarefni er hormónið melatonín. Einnig eru ákveðnar jurtir sem hafa eiginleika andoxunarefna.
Til að vinna gegn oxun er best að auka neyslu á ferskum ávöxtum og grænmeti þar sem rannsóknir hafa sýnt að andoxunarefni sem koma beint úr náttúrunni verka betur en andoxunarefni sem tekin eru sem fæðubótarefni, en þó er hægt að taka þau inn aukalega.
Ef taka á inn andoxunarefni í formi fæðubótarefna er mikilvægt að taka frekar litla skammta af ólíkum andoxunarefnum heldur en stóra skammta af einni tegund.
Rannsóknir á andoxunarefnum hafa meðal annars bent til að E-vítamín geti minnkað hættuna á hjarta- og æðasjúkdómum og beta-karótín vinnur gegn myndun krabbameinsfrumna.