Beint í leiðarkerfi vefsins eða leitarvél vefsins.
Lífræn bómull er sterkari og heldur sér betur. og Hún er að margra mati fallegri en venjuleg bómull vegna þess að ekki er búið að menga hana með alls kyns eiturefnum, vaxtarhormónum og aflaufgunarmiðlum. Bómullin er mýkri og hún andar betur. Eiturefnin geta verið hættuleg fólki sem vinnur við framleiðsluna og það geta verið leifar af eitri í fatnaðinum auk þess sem að eitrið er umhverfisspillandi. Umhverfisvæn bómull er handtínd og það kemur í veg fyrir að hún skemmist í vélum.
Lífræn og umhverfisvæn bómull er mjög litekta vegna þess að frá umhverfissjónarmiði er ekki gott að flíkin gefi frá sér lit þegar hún er þvegin, þess vegna er lögð mikil áhersla á það að liturinn sé fastur. Hún þolir mjög vel þvott, verður raunar mýkri með hverjum þvotti. Litaða bómull má þvo við 40 gráður en ólitaða við 60 gráður. Hún þolir ekki háan hita í þurrkara vegna þess að hún er ekki þvegin uppúr efnum með hitavörn. Hana má setja í þurrkara en ekki við háan hita.