Erfðabreytt matvæli

10.21.2008

Erfðabreytt matvæli eru  afurðir erfðatækni  sem breytir plöntu með því að splæsa í
hana framandi geni úr ólíkum tegundum – til dæmis bakteríu, vírus, óskyldum matjurtum
eða jurtum sem ekki eru notaðar til matar, skordýri, öðrum dýrum og jafnvel úr manni –
í því skyni að endurhanna plöntuna og veita henni eftirsóknarverða eiginleika.

Ef vísindamenn hyggjast búa til frostþolinn tómat gætu þeir splæst í þessa plöntu geni
úr heimskautafiski (t.d. flyðru) til að framleiða frostþolið prótein.

Plöntur sem framleiddar eru með erfðabreytingum eru mjög ólíkar plöntum sem framleiddar
eru með náttúrulegum ræktunaraðferðum vegna þess að þær hafa að geyma gen sem tekin
voru úr ólíkum tegundum. Náttúruleg æxlun verður ekki milli tegunda, og sérhver tilfærsla
gena milli tegunda á sér stað innan þess öryggis sem náttúruleg þróun veitir.

 

Heimildir: Erfdabreytt.net; erfðabreytt matvæli.