Ayurveda

10.21.2008

Ayurveda svipar til hefðbundinna kínverskra lækninga hvað varðar hagnýta notkun á heimspekilegri hugmyndafræði. Hún  byggist á kenningum um lífsorkuna sem kínverska hugmyndafræðin kallar qi en ayurveda kallar prana.

Bæði kínverska hugmyndafræðin og ayurveda eru grundvallaðar á tveggja póla náttúruhugtökum, yin og yang í kínversku fræðunum en shiva og shakti í ayurveda fræðunum. Bæði kerfin flokka sjúkdóma niður í fimm frumkrafta og þrjár gerðir. Hið síðarnefnda er þó mikilvægara hugtak í ayurvedafræðunum en þeim kínversku.  Ayurveda hefur haft áhrif á annað fornt náttúrulækningakerfi í Mið-Austurlöndum sem nefnist unani en þangað eiga svo hinar hippókratísku lækningaraðferðir Grikkja og Rómverja rætur að rekja. Rómverjinn Galen lagði svo grunninn  að hefðbundnum evrópskum lækningum. Að lokum eru sterk söguleg rök fyrir því að indverskir fræðimenn hafi borið með sér ayurveda fræðinum Tíbet til Kína, þannig að með sanni má segja að ayurveda sé „móðir náttúrulækninga“.