Ilmolíur fyrir barnshafandi konur

10.16.2008

Hjálpa til við að

•    Auka blóðflæði líkamans
•    Eykur næringu til fósturs
•    Frásog til sogæða eykst
•    Vatnssöfnun líkamans minnkar


•    Olíur mýkja vöðvana og gera þær líkamann undirbúinn fyrir breytingar á meðgöngu
•    Olíur vinna á bakteríum, halda kvillum í lágmarki
Aðferð:
•    Gott er að setja olíudropana í burðarefni sem er önnur olía eða lyktarlaust húðkrem, Logona Cellulite olían er mjög góð burðarolía.
•    Nuddað á viðkvæm húðsvæði og sérstaklega þau sem eru í hættu á að slitna
•    Mjög gott er líka að setja hreina olíudropa í baðið

Nauðsynlegt er að hafa í huga að nota réttar ilmkjarnaolíur því ekki eru allar ilmkjarnaolíur æskilegar í meðferð á meðgöngu.
Gott er að hafa í huga að nota alls ekki olíur sem örva líkamsstarfsemina á meðgöngu.
•    Basil
•    Cedarwood
•    Clary-sage
•    Peppermint
•    Sage
•    Thyme red

Við meðgöngu er gott að nota :
•    Bergamo - Sæt, frískandi olía, góð við þunglyndi
•    Chamomile - Róandi og slakandi, góð við vöðvaspennu og höfuðverk
•    Eucalyptus - Góð við vöðva og liðverkjum, bólgueyðandi
•    Lavender- róandi, sveppa og bakteriudrepandi, hreinsar flösur og aðra húðsveppi
•    Rosemary - góð við kvefi og losar um stíflaðar ennisholur, hreinsandi
•    Rosewood - dásamleg olía til að létta sér lífið
•    Tea tree - ákaflega bakteríudrepandi og jafnvægisstillandi

Aftur á móti er gott að nota við fæðingu þegar fóstur er búið að skorða sig og tilbúið að koma í heiminn eða 5 dögum fyrir áætlaða fæðingu  eftirfarandi blöndu á svæði eins og magastöð, rasskinnar, innanlæri og neðra bak, einnig gott að nudda þessi svæði þétt á meðan á fæðingu stendur :
•    250 ml hrein burðarolía
•    10 dropar Basil – upplífgandi og hressandi – gefur orku.
•    30 dropar Clary Sage - Róar taugakerfið
•    10 dropar Lavender – róandi og bakteríudrepandi
•    10 dropar Peppermint – góð við krampa, streitu og er hreinsandi

ALLAR OLÍURNAR FÁST Í MAÐUR LIFANDI OG ÞAR FÆRÐU FAGLEGA RÁÐGJÖF.