Spelt

10.15.2008

Spelt er ein af frumkorntegundum heimsins.  Spelt er auðugt af trefjum og inniheldur meira prótín en hveiti. Jafnframt er meira af B-vítamínum sem og flóknum kolvetnum í spelti en venjulegu hveiti. Flókin kolvetni eru besti orkugjafinn og því er spelt og matvörur úr því kjörinn kostur t.d. fyrir íþróttafólk. Það sem þó hefur öðru fremur aukið vinsældir spelts og vara úr því, er að margt fólk sem illa þolir glúten getur notað spelt án vandræða þó að það innihaldi glúten. Ekki er vitað nákvæmlega hvers vegna, en ástæðan er m.a. talin vera sú að glútenið í spelti hefur aðra byggingu en glúten í öðru hveiti, það er vatnsleysanlegra og því auðmeltara.

Spelt inniheldur flest næringarefni sem þarf til að viðhalda góðri heilsu. Það inniheldur amínósýrur, steinefni, snefilefni og vítamín. Í spelti má finna töluvert magn af fosfór, kalíum, kísil og magnesíum. Einnig er meira af vítamíni B1 og B2 og níasíni í spelti heldur en í hveitikorni.