Glúteinóþol

10.15.2008


Fólk með glútenóþol má ekki borða matvæli sem innihalda glúten, en þá bólgna þarmarnir og starfa ekki sem skyldi. Glúten er samheiti fyrir prótein sem finna má í ýmsum korntegundum, s.s. hveiti, spelt, byggi, rúgum og höfrum. Hægt er þó að fá hreina hafra sem hafa verið sérstaklega meðhöndlaðir fyrir einstaklinga með glútenóþol.

Matvæli sem eru án glútens geta verið þannig af náttúrunnar hendi eða vegna þess að þau hafa verið höndluð sérstaklega. Dæmi um það er t.d. glútenfrítt pasta.

Glúten er ekki í kjöti, fisk, mjólk, mjólkurafurðum s.s. osti, ávöxtum, ávaxtasafa, grænmeti, kartöflum, eggjum, hnetum, möndlum, hörfræjum, smjöri, matarolíu, smjörlíki, hrísgrjónum og kókos, svo framarlega sem þetta eru ekki samsett matvæli með glúteini í. Dæmi um samsett matvæli er t.d. jógúrt með múslí sem gæti innihaldið glúten.

Glúten getur verið í ýmsum tilbúnum réttum og matvælum og því ber að huga vel að merkingum matvæla til að sjá hvort glúten leynist þar í.

Glúten er eða gæti verið í ýmsu morgunkorni, unnum kjötvörum s.s. kjötfarsi, áleggi, pylsum og kæfum, hvítum jafningi, pakkasósum, súputeningum, sinnepi, tómatsósu, remúlaði, mæjónesi, karrý og kryddtegundum, lakkrís, frosnum kartöflum, kartöfluflögum, steiktum lauk og hlaupi.