Fairtrade

10.15.2008

Fairtrade er sjálfstæð vottun á því að viðskipti með viðkomandi vöru hafi verið samkvæmt skilyrðum um sanngjörn viðskipti.  Mikið af framleiðslu á sér stað í hinum fátækari löndum heimsins og í hefðbundinni matvælaframleiðslu er hagkvæmnin jafnan sett ofar sanngirni.  Það það sem einkennir Fairtrade viðskipti er að sá sem lætur framleiða fyrir sig greiðir sanngjarnt verð til framleiðenda.  Einnig eru þessi fyrirtæki virkir þátttakendur í uppbyggingu og vöruþróun ýmisskonar í vanþróuðum löndum.

Rökin á bak við sanngjörn viðskipti eru:

  1. Að framleiðendur og bændur fái sanngjörn laun fyrir vinnu sína og vörur.
  2. Að draga úr barnaþrælkun.
  3. Að lífræn ræktun nái frekari útbreiðslu.
  4. Að styrkja réttinn til félagafrelsis og stuðla að lýðræðisþróun.
  5. Að draga úr misrétti í heiminum