Af hverju lífrænt?

10.15.2008

1. Það er hollara

Lífrænt ræktuð matvæli innihalda meira magn C-vítamíns og nauðsynlegra steinefna eins og kalsíums, magnesíums, járns og króms auk fjölda andoxunarefna heldur en matvæli ræktuð með hefðbundnum hætti.

2. Engin aukaefni

Lífrænt ræktuð matvæli innihalda ekki aukaefni sem geta valdið okkur allskyns sjúkdómum, óþoli og ofnæmi. Meðal aukaefna sem bönnuð hafa verið í lífrænni framleiðslu er hert fita, aspartam (gervisykur) og MSG (þriðja kryddið).

3. Ekki erfðafræðilega breytt

Erfðafræðilegar breytingar eru ekki leyfðar innan lífrænt vottaðra matvæla.

4. Hár gæðaflokkur

Lífrænt ræktuð matvæli koma frá mjög traustum framleiðendum þar sem öll lífræn framleiðsla lýtur mjög ströngum kröfum og eftirliti til þess að fá lífræna vottun.

5. Umhverfisvæn

Lífræn ræktun veldur minni náttúrumengun og hefur minni gróðurhúsaáhrif en hefðbundin ræktun.